Í tilefni kvenréttindadagsins var blómsveigur frá Reykvíkingum lagður í gær að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur við hátíðlega athöfn í Hólavallakirkjugarði.
Að þessu sinni lögðu systurnar Álfrún Hanna og Lóa Björk Gissurardætur kransinn á leiðið. Þórdís Petra Ólafsdóttir sá um tónlistarflutning og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, flutti ávarp, þar sem hún tileinkaði daginn kvenfyrirmyndum sem ruddu brautina.
Það er fallegt um að litast í kirkjugarðinum um þessar mundir og gerðu gestir sér ferð í garðinn til að vera viðstaddir athöfnina þrátt fyrir að það rigndi hressilega þennan dag.