Austurríki Erlingur Birgir Richardsson er þaulreyndur þjálfari.
Austurríki Erlingur Birgir Richardsson er þaulreyndur þjálfari. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Erlingur Birgir Richardsson hefur verið ráðinn yfirþjálfari austurríska handknattleiksfélagsins Mödling. Erlingur fær það verkefni að vinna náið með þjálfurum og leikmönnum félagsins með það fyrir augum að koma þeim á næsta stig

Erlingur Birgir Richardsson hefur verið ráðinn yfirþjálfari austurríska handknattleiksfélagsins Mödling. Erlingur fær það verkefni að vinna náið með þjálfurum og leikmönnum félagsins með það fyrir augum að koma þeim á næsta stig. Hann mun áfram vera búsettur í Vestmannaeyjum en mun ferðast til Austurríkis í nokkrum lotum og eyða samtals 80-100 dögum þar í landi á næsta tímabili. Erlingur var síðast landsliðsþjálfari Sádi-Arabíu en lét af störfum í febrúar.