Boston Mazzulla fékk hjálp frá knattspyrnustjóranum Guardiola.
Boston Mazzulla fékk hjálp frá knattspyrnustjóranum Guardiola. — AFP/Mike Lawrie
Joe Mazzulla, þjálfari NBA-meistara Boston Celtics í körfuknattleik, segir Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City, hafa hjálpað sér að vinna úrslitaeinvígið gegn Dallas Mavericks. „Dallas er með mjög sniðuga vörn

Joe Mazzulla, þjálfari NBA-meistara Boston Celtics í körfuknattleik, segir Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City, hafa hjálpað sér að vinna úrslitaeinvígið gegn Dallas Mavericks. „Dallas er með mjög sniðuga vörn. Við urðum að vera skapandi. Pep hjálpaði mér að skipuleggja það með því að segja mér hvernig ég ætti að hreyfa strákana og finna leiðir í gegnum vörnina,“ sagði Mazzulla á fréttamannafundi eftir fimmta leik, en Boston vann einvígið 4:1.