París Róbert Ísak Jónsson er á leið á Paralympics í annað skipti.
París Róbert Ísak Jónsson er á leið á Paralympics í annað skipti. — Ljósmynd/ÍF
Sundmaðurinn Róbert Ísak Jónsson úr SH og Firði keppir á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics, í París í sumar. Róbert fær svokallaða Bipartite-úthlutun en slík boð eru veitt hæfum íþróttamönnum sem ná ekki lágmörkum af einhverjum ástæðum

Sundmaðurinn Róbert Ísak Jónsson úr SH og Firði keppir á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics, í París í sumar. Róbert fær svokallaða Bipartite-úthlutun en slík boð eru veitt hæfum íþróttamönnum sem ná ekki lágmörkum af einhverjum ástæðum. Róbert keppti í úrslitum í flugsundi á leikunum í Tókýó 2021 en náði ekki lágmarki í sumar vegna veikinda. Hann keppir í 100 metra flugsundi í flokki S14 en undanrásir fara fram 29. ágúst.