Orri Hauksson forstjóri Símans mun láta af störfum sem forstjóri í lok sumars eftir að hafa starfað hjá félaginu í rúman áratug. Við starfinu tekur María Björk Einarsdóttir, sem nú starfar sem fjármálastjóri Eimskips
Orri Hauksson forstjóri Símans mun láta af störfum sem forstjóri í lok sumars eftir að hafa starfað hjá félaginu í rúman áratug. Við starfinu tekur María Björk Einarsdóttir, sem nú starfar sem fjármálastjóri Eimskips.
Tilkynnt var um forstjóraskiptin með tilkynningu í gærdag.
„Eftir að hafa starfað lengi hjá þessu frábæra félagi, Símanum, er heilbrigt fyrir félagið og sjálfan mig að nýr kafli hefjist,“ segir Orri í tilkynningunni.
Jón Sigurðsson stjórnarformaður Símans þakkaði Orra fyrir hans framlag til Símans og bauð Maríu Björk velkomna til starfa.