Djass Tvíeykið Silva & Steini kemur fram á tónleikum á morgun.
Djass Tvíeykið Silva & Steini kemur fram á tónleikum á morgun.
Djasstvíeykið Silva & Steini kemur fram á tónleikum á Gljúfrasteini á morgun, sunnudaginn 23. júní, kl. 16. Tvíeykið saman­stendur af söngkonunni Silvu Þórðardóttur og söngvaranum og píanóleikaranum Steingrími Teague

Djasstvíeykið Silva & Steini kemur fram á tónleikum á Gljúfrasteini á morgun, sunnudaginn 23. júní, kl. 16. Tvíeykið saman­stendur af söngkonunni Silvu Þórðardóttur og söngvaranum og píanóleikaranum Steingrími Teague. Efnisskráin verður, skv. tilkynningu, blanda af rykföllnum standördum og lögum af mærum djassins og annarra stefna þar sem lögð verður áhersla á pláss, nærveru og samspil radda þeirra Silvu og Steina.

Þau gáfu út plötuna More Than You Know vorið 2022. Síðastliðinn fimmtudag kom út fyrsta lagið af væntanlegri plötu. Það ber nafnið „I Ought To Stay Away From You“ og ætla má að Silva & Steini spreyti sig á laginu í húsi skáldsins nú á sunnudaginn.