Óvænt Guðmundur Þ. Guðmundsson er kominn langt með liðið.
Óvænt Guðmundur Þ. Guðmundsson er kominn langt með liðið. — Ljósmynd/Fredericia
Danska handknattleiksliðið Fredericia, undir stjórn Guðmundar Þ. Guðmundssonar, mun leika í Meistaradeild karla næsta vetur. Félaginu var úthlutað einu lausu sæti í deildinni og þar verða því tvö dönsk lið en Aalborg komst í úrslitaleik keppninnar í …

Danska handknattleiksliðið Fredericia, undir stjórn Guðmundar Þ. Guðmundssonar, mun leika í Meistaradeild karla næsta vetur. Félaginu var úthlutað einu lausu sæti í deildinni og þar verða því tvö dönsk lið en Aalborg komst í úrslitaleik keppninnar í vor og hafði betur í einvígi við Fredericia um danska meistaratitilinn. Sjö önnur Íslendingalið eru meðal 16 þátttökuliða, Magdeburg, Veszprém, Pick Szeged, Kolstad, Wisla Plock, Sporting og Kielce.