List Ava P. Christl er önnur gestalistamannanna.
List Ava P. Christl er önnur gestalistamannanna.
Ava P. Christl og Daniel Fonken eru gestalistamenn Gilfélagsins í Deiglunni á Akureyri í júní og opna þau sýninguna re|FOREST|tree um helgina. Opið verður í dag og á morgun, 22.-23

Ava P. Christl og Daniel Fonken eru gestalistamenn Gilfélagsins í Deiglunni á Akureyri í júní og opna þau sýninguna re|FOREST|tree um helgina. Opið verður í dag og á morgun, 22.-23. júní, frá 12-17. Listamannaspjall og móttaka verður haldin í dag kl. 17.

Sýningin re|FOREST|tree skoðar „tré og skóga á Íslandi, með teikningum, málverki og ljósmyndum, með það fyrir augum að fræðast um og fagna áratuga endurskógrækt í skóg-eyddu landslagi Íslands“, eins og segir í tilkynningu. „Mánaðarlangt samstarf listamannanna á Akureyri tekur sjónarhorn hvort tveggja frá ljósmyndaröð Fonken af brunnum skógum eftir skógarelda í Colorado og langtímaverkefni Christl um vistfræðilegt tap og endurheimt í barrskógum Norður-Kanada.“