Skordýr Lúsmý er komið til landsins, staðfest á Suðurlandinu.
Skordýr Lúsmý er komið til landsins, staðfest á Suðurlandinu. — Morgunblaðið/Eggert
Lúsmý er komið aftur til landsins. Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við Háskóla Íslands, staðfestir í samtali við Morgunblaðið að lúsmý sé komið á Suðurlandið og búast megi við að það fari bráðum að birtast í öðrum landshlutum

María Hjörvar

mariahjorvar@mbl.is

Lúsmý er komið aftur til landsins. Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við Háskóla Íslands, staðfestir í samtali við Morgunblaðið að lúsmý sé komið á Suðurlandið og búast megi við að það fari bráðum að birtast í öðrum landshlutum.

Hann segir ekkert óvenjulegt að lúsmý sé fyrst núna að birtast, það hafi stundum verið komið fyrr. Kalt vor sé líklega ástæðan fyrir seinkuninni, ef svo má að orði komast.

Gísli segir lúsmýið njóta sín við skjól og tjaldstæði og þar sem sumarbústaðir eru umvafðir rjóðri og kjarri. „Þess vegna verður fólk mest vart við þetta á slíkum stöðum,“ segir Gísli og bætir við að mýið dreifi sér hratt og geti þannig borist milli staða með hjólhýsum og öðrum farartækjum.

Stærri og dýpri bit en lúsmý

Gísli bendir á að bitmý sé ekki síður hvimleitt en lúsmý. Um svipaðar tegundir sé að ræða þótt fólk kippi sér minna upp við bitmý. Það er mun stærra en lúsmý og bitin frá því eru einnig stærri og dýpri.

Hann segist þó skilja af hverju fólk taki betur eftir lúsmýi þar sem fólk þurfi aðeins að fara í skugga til þess að losna við bitmý. „Lúsmýið geturðu ekki forðast, það eltir þig inn í hús,“ segir Gísli að endingu.

Höf.: María Hjörvar