— Morgunblaðið/Eggert.
Parísarhjólið við Reykjavíkurhöfn hefur vakið mikla athygli síðan það var sett upp og vígt á þjóðhátíðardaginn.

Parísarhjólið við Reykjavíkurhöfn hefur vakið mikla athygli síðan það var sett upp og vígt á þjóðhátíðardaginn. Kamma Thordarson, verkefnastjóri í atvinnu- og borgarþróunarteymi Reykjavíkurborgar, segir í samtali við Morgunblaðið að vel hafi verið tekið í þessa tilbreytingu í mannlífið í borginni.

Um 150 manns hafi farið í hjólið að meðaltali á dag en rekstraraðilar vilji endilega fá fleiri gesti og þá sérstaklega heimamenn.

Miðaverð fyrir fullorðna er 3.000 krónur ef miðar eru keyptir á staðnum en 2.500 krónur ef þeir eru keyptir í netsölu. Þar er líka hægt að kaupa miða fyrir einn fullorðinn og barn fyrir 4.000 krónur og fjögurra manna fjölskyldu á 8.000 krónur.