Stjórn Blaðamannafélags Íslands krefst þess að yfirvöld rannsaki netárás sem gerð var á fjölmiðla Árvakurs. Í ályktun sem félagið sendi frá sér í gær segir að árás sem þessi á frjálsan fjölmiðil sé atlaga að lýðræðinu.
„Það er til marks um mikilvægi frjálsra fjölmiðla í lýðræðissamfélögum að þeir skuli vera fórnarlamb árása á borð við þá sem miðlar Árvakurs, þar á meðal Morgunblaðið, mbl.is og K100, urðu fyrir í gær. Það er ömurlegt til þess að vita að rússnesk glæpasamtök séu nú með gögn fyrirtækisins í gíslingu og að árásin hafi haft alvarleg áhrif á starfsemi miðlanna,“ segir í ályktuninni.
Þar segir enn fremur að taka þurfi viðburð sem þennan föstum tökum. „Árás sem þessi er ekkert annað en atlaga að grunnstoðum lýðræðisins og frjálsri fjölmiðlun sem við sem samfélag þurfum að taka alvarlega og fordæma. BÍ treystir því að yfirvöld rannsaki árásina gaumgæfilega í ljósi alvarleika hennar og geri ráðstafanir til að verja sérstaklega mikilvæga samfélagslega innviði á borð við fréttamiðla. Stöndum vörð um fjölmiðlana og lýðræðið því blaðamennska hefur aldrei verið mikilvægari,“ segir í ályktun BÍ.
Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segir í færslu sem hún birti á Facebook að tölvuárásin sem var gerð á Árvakur hafi verið grafalvarleg árás á frjálsan fjölmiðil á Íslandi.
„Þetta er árás á lýðræðið í landinu og frjáls skoðanaskipti. Uppruni árásarinnar er tengdur við rússnesk glæpasamtök. Tilgangur þessarar atlögu er að vekja ótta og þagga niður í fjölmiðlum, því var afar ánægjulegt að fá Morgunblaðið inn um lúguna þennan morgun. Við verðum að vera vakandi gagnvart þessari ógn og ætíð standa með lýðræðinu,“ skrifar ráðherra.