Sigurganga íslensku stúlknanna á heimsmeistaramóti U20 ára landsliða í handknattleik hélt áfram í Skopje
Sigurganga íslensku stúlknanna á heimsmeistaramóti U20 ára landsliða í handknattleik hélt áfram í Skopje í Norður-Makedóníu í gær þegar þær unnu sannfærandi sigur á Svartfjallalandi í milliriðli , 35:27. Ísland er þar með komið í átta liða úrslitin en á þó eftir að mæta Portúgal í dag. Lilja Ágústsdóttir skoraði 13 mörk fyrir íslenska liðið, Elín Klara Þorkelsdóttir sex og Elísa Elíasdóttir fimm mörk. Ísland var yfir í hálfleik, 15:14.