Logi Sigurðsson úr Golfklúbbi Suðurnesja er Íslandsmeistari karla í holukeppni 2024
Logi Sigurðsson úr Golfklúbbi Suðurnesja er Íslandsmeistari karla í holukeppni 2024 en mótið fór fram á Garðavelli á Akranesi og hófst á laugardaginn. Hann vann Jóhannes Guðmundsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur í úrslitaeinvíginu í gær. Logi vann Jóhann Frank Halldórsson úr GR og Jóhannes vann Kristján Þór Einarsson úr GM í undanúrslitum í gærmorgun. Logi er einnig ríkjandi Íslandsmeistari í höggleik.