Það var líf og fjör við Tjörnina í Reykjavík í gær þegar mávager gæddi sér á brauði frá vegfaranda.

Það var líf og fjör við Tjörnina í Reykjavík í gær þegar mávager gæddi sér á brauði frá vegfaranda. Hart var barist um hvern bita og höfðu endur og gæsir ekki roð við mávunum. Ekki er mælt með því að fuglum við Tjörnina sé gefið brauð frá vori og fram á haust. Brauðgjafir laða að máva sem gjarnir eru á að éta unga annarra fugla.