Í dag og kvöld fara fram fjórir síðustu leikirnir í riðlakeppni Evrópumóts karla í fótbolta

Í dag og kvöld fara fram fjórir síðustu leikirnir í riðlakeppni Evrópumóts karla í fótbolta í Þýskalandi og þar ráðast úrslitin í E- og F-riðlum. Í hinum ótrúlega spennandi E-riðli eru Rúmenía, Belgía, Slóvakía og Úkraína öll jöfn að stigum en í F-riðli eru Portúgalir komnir áfram og Tyrkland, Tékkland og Georgía berjast um að fylgja þeim.