Sveinn Valfells
sveinnv@mbl.is
Nokkur styr hefur staðið um áform Isavia, um að hefja myndavélagjaldtöku á bílastæðum við innanlandsflugvelli. Hafa bílaleigur nú bæst í hóp þeirra sem mótmæla gjaldtökunni.
Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar, segir gjaldtökuna íþyngja rekstrinum gríðarlega, en hann segir skort Isavia á samráði einnig ámælisverðan.
„Ef áformin ganga í gegn má þar með segja að síðasti naglinn í líkkistu innanlandsflugs hafi verið negldur,“ segir Steingrímur og bætir við:
„Við erum að lágmarki að tala um tíföldun á kostnaði fyrir bílaleigurnar. Þetta er einfaldlega óraunhæf kostnaðarhækkun sem setur alla samninga í uppnám og þar sem henni er skellt á okkur án samráðs getum við lítið gert. Hún mun því aðeins skila sér í hækkuðu verðlagi fyrir neytendur, þannig að dýrara verður að leigja bíl.“
Steingrímur segist almennt sýna því skilning að bílaleigur greiði fyrir afnot bílastæða.
„Við höfum greitt fyrir stæðin í áratugi, en þetta snýst ekki greiðsluvilja heldur sanngirni og hvort áformin séu í raun og veru framkvæmanleg.“
Steingrímur vonast til þess að samningar náist við Isavia í málinu, en samningaviðræður hafa staðið yfir.
Talsmenn Isavia vildu ekki tjá sig um málið, þegar eftir því var leitað í gær, en fyrirtækið hefur áður sagt að gjaldtökunni sé ætlað að fjármagna viðhald og rekstur bílastæðanna.