Eldur kom upp á veitingastaðnum Intro við Katrínartún í Reykjavík um hádegið í gær. Húsnæðið var rýmt í skyndi, en mikill eldur sást blossa upp úr kjallara sem barst upp á jarðhæð. Vatnsúðarakerfi í húsinu náði að slökkva mesta eldinn og slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu tók síðan við. Líklegt þykir að eldsvoðinn eigi upptök sín að rekja í lyftustokk sem ekki var í notkun. Töluverðar vatnsskemmdir urðu á húsnæðinu en engan sakaði.
Engar brunavarnabjöllur hringdu á skrifstofu ferðafélagsins Útivistar í Katrínartúni 4. Þetta segir Þórdís Sigurðardóttir sem var að störfum á skrifstofunni. Hún segir þó að brunavarnabjöllur hafi hringt frammi á gangi, sem nokkur fyrirtæki deila aðgengi að. „Við fórum bara út og það var reykmökkur yfir öllu hérna úti, slökkviliðið á leiðinni og allir komnir út sem eru í þessu húsi.“