Spánn Nýr togari Þorbjarnar, Helga Björnsdóttir GK, er tilbúinn og verður 
afhentur kaupendum í lok næsta mánaðar. Verður Helgu þá siglt heim.
Spánn Nýr togari Þorbjarnar, Helga Björnsdóttir GK, er tilbúinn og verður afhentur kaupendum í lok næsta mánaðar. Verður Helgu þá siglt heim. — Ljósmynd/Þorbjörn hf.
Í skipastöð Armon í Gijón á Spáni er unnið þessa dagana við að fínstilla ýmsan búnað í nýjum togara Þorbjarnarins hf.

Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is

Í skipastöð Armon í Gijón á Spáni er unnið þessa dagana við að fínstilla ýmsan búnað í nýjum togara Þorbjarnarins hf. Skipið góða, Hulda Björnsdóttir GK 11, verður afhent kaupendum 31. júlí næstkomandi, gangi allt eftir og þá strax siglt heim.

„Svona er planið nákvæmlega núna, en smíði og afhending togarans hefur tafist um nokkra mánuði. Núna virðist þetta þó allt vera að ganga upp,” segir Hrannar Jón Emilsson, útgerðarstjóri hjá Þorbirninum, í samtali við Morgunblaðið.

Uppkeyrsla á vélbúnaði og raftækni í togaranum er verkefnið ytra þessa dagana. Vélmenn og tæknimenn frá Þorbirnium eru þar svo og Valur Pétursson skipstjóri sem útgerðin fól að hafa auga með lokafrágangi á skipinu og sigla því svo heim. „Menn eru núna að reyna ýmis tæki í lestinni og svo þarf að tékka á spilum og togbúnaði. Einnig þarf að fara í sjóprófanir, en allt er þetta tekið eftir ákveðnu plani,” segir Hrannar Jón.

Nýlega sagði Þorbjörninn upp ráðningarsamningum við sjómenn á nokkrum báta sinna. Þetta var gert í því skyni að hafa svigrúm til að stokka upp áhafnaskipan og útgerð fyrirtækisins, því talsvert breytist í starfseminni með togaranum nýja. Fyrir eru í skipastól félagsins togararinn Hrafn Sveinbjarnarson og Tómas Þorvaldsson, togskipið Sturla og línubátarnir Hrafn og Valdimar.

„Jarðhræringarnar í Grindavík ráða því að við höfum ekki náð að gera þau plön til framtíðar sem þarf. Margt hefur riðlast en að undanförnu hafa skip okkar gjarnan landað í Grindavík. En ný Hulda Björnsdóttir er á heimleið og fer í útgerð strax í upphafi nýs fiskveiðiárs,” segir útgerðarstjórinn.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson