Tólfta umferðin í Bestu deild karla í fótbolta er leikin í kvöld og annað kvöld og hún hefst á Ísafirði í dag klukkan 18 þegar Vestri tekur á móti Fram.

Tólfta umferðin í Bestu deild karla í fótbolta er leikin í kvöld og annað kvöld og hún hefst á Ísafirði í dag klukkan 18 þegar Vestri tekur á móti Fram. Ísfirðingar fá því annan leik á heimavelli á fimm dögum eftir að hafa spilað fyrstu tíu leiki sína í deildinni í öðrum landshlutum. Klukkan 19.15 hefjast síðan leikir Stjörnunnar og Víkings í Garðabæ og KR og Fylkis í Vesturbænum.