Í Húnaþingi vestra er hafin uppbygging á innanhússræktun á rabarbara. Engin dæmi eru um að þessi ræktunaraðferð hafi áður verið notuð hérlendis.

Í Húnaþingi vestra er hafin uppbygging á innanhússræktun á rabarbara. Engin dæmi eru um að þessi ræktunaraðferð hafi áður verið notuð hérlendis.

Friðrik Már Stefánsson og fyrirtæki hans Framhugsun ehf. fara fyrir verkefninu sem hlaut nýverið styrk úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra.

Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu verður rabarbarinn ræktaður í myrkvuðu umhverfi og með þeirri aðferð er stefnt að því að auka sætleika, lit og bragðgæði stönglanna. Einnig næst fram lengri uppskeru-tími með auknu magni og meiri gæðum afurðanna. Aukin gæði rabarbarans opna ný tækifæri til verðmætrar nýtingar, svo sem í matvæla- og drykkjarframleiðslu.

Húsnæði ásamt aðstöðu fyrir ræktunina er í uppsetningu og gert er ráð fyrir að það verði tilbúið fyrir komandi haust. Markmiðið er að hefja framleiðslu vorið 2025, þótt fullum afköstum verði ekki náð fyrr en vorið 2026. Fram undan er að undirbúa og blanda jarðveg, setja upp vökvunarkerfi og standsetja rými til vinnslu og pökkunar.

Verkefninu er ætlað að auka tekjur af frumframleiðslu og skapa störf í Húnaþingi vestra, bæði í frumframleiðslu og tengdri starfsemi, segja aðstandendur. Þeir segja að þetta nýja verkefni muni færa nýja vöru á markaðinn og gefa möguleika á stækkun í takt við eftirspurn. Einnig séu góðir möguleikar á afleiddum verkefnum tengdum áframvinnslu á rabarbaranum. saethor@mbl.is