Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Lóðaframboð í Reykjavík til einstaklinga er nánast ekkert og ljóst að stór hópur Reykvíkinga hefur flutt í önnur sveitarfélög.

Það sem einkennt hefur stjórn borgarinnar á undanförnum árum er í raun aðgerða- og stjórnleysi á mörgum sviðum. Gatnakerfi borgarinnar ræður illa við þá umferð sem fer um borgina daglega enda nánast engar gatnaframkvæmdir sem liðka fyrir umferðinni séð dagsins ljós síðasta áratuginn. Miklu fremur er víða í borginni þrengt að umferðinni með ýmsum hætti eins og þeir bifreiðastjórar hafa upplifað sem aka reglulega um borgina eða þurfa að sækja þjónustu, ekki síst í miðborgina og nánasta umhverfi.

Seinagangur í stjórnsýslu

Seinagangurinn í stjórnsýslu borgarinnar eykst með hverju árinu sem líður og sá borgarstjóri sem nú víkur fyrir nýjum borgarstjóra ber alla ábyrgð á. Það verður ekki auðvelt verkefni fyrir nýjan borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, að hreinsa flórinn eftir fráfarandi borgarstjóra, Dag B. Eggertsson. Borgarfulltrúum hefur hins vegar fjölgað úr 15 í 23 og árleg meðallaun borgarfulltrúa sem sitja í borgarráði og nokkrum nefndum eru nú um 18 milljónir króna. Bruðlið í yfirbyggingu Reykjavíkurborgar er yfirgengilegt.

Lóðaframboð í lágmarki

Lóðaframboð til einstaklinga er nánast ekkert og ljóst að stór hópur Reykvíkinga hefur flutt í önnur sveitarfélög þar sem lóðaframboð og almenn þjónusta er með öðrum og betri hætti. Fyrst og fremst eru byggðar háreistar blokkir í Reykjavík, aðallega á lóðum sem verktakar hafa keypt dýrum dómum, sem síðan endurspeglast í söluverði íbúðanna.

Ef Sjálfstæðisflokkurinn sækist eftir meira fylgi í næstu kosningum en hann mælist með í dag, sem hann hlýtur að gera, verður hann að sýna kjósendum skýra og trúverðuga framtíðarsýn í málefnum borgarinnar. Ef honum tekst það ekki er nokkuð ljóst að borgarbúar muni áfram búa við getu- og úrræðaleysi vinstristjórnar í Reykjavík.

Höfundur er fyrrverandi borgarstjóri.