Guðrún Aspelund
Guðrún Aspelund
„Við höfum séð aðeins fleiri covid-greiningar koma til okkar síðustu vikur. Þá kannski sérstaklega síðustu þrjár vikur eða svo,“ segir Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir við embætti landlæknis.

Egill Aaron Ægisson
egillaaron@mbl.is

„Við höfum séð aðeins fleiri covid-greiningar koma til okkar síðustu vikur. Þá kannski sérstaklega síðustu þrjár vikur eða svo,“ segir Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir við embætti landlæknis, um fjölgun tilfella Covid-19-veirunnar í samfélaginu.

„Síðustu tvær vikur fór þetta upp í um 30 tilfelli á viku og þar á undan svona 20 tilfelli. Þar á undan var þetta komið alveg niður í stakar tölur þannig að þetta er alveg klárlega aukning. Þó ekki mjög háar tölur miðað við það sem við höfum auðvitað séð áður,“ segir Guðrún enn fremur.

Aðspurð segir hún að enn sé ekki hægt að reyna að greina mynstur er varðar covid-smitin. Of stutt sé síðan mikill faraldur var í samfélaginu og því þurfi meiri reynslu til að greina hvort aukin smit muni koma í bylgjum á næstu árum.

Varðandi aðrar pestir í samfélaginu segir Guðrún þær ekki í áberandi vexti. Jafn mikið sjáist af hefðbundnu kvefi og venjulega á þessum tíma árs en uppspretta kíghósta í apríl hafi þó verið óvanalegt. Reiknar sóttvarnalæknir með að um 100 tilfelli kíghósta hafi greinst síðan í apríl en tilfellum fari fækkandi.

Þá hefur verið fjölgun á mycoplasma-sýkingum í samfélaginu en um er að ræða aðra öndunarfærasýkingu með hósta. Segir Guðrún að ekki sé vanalega fylgst mikið með þeirri sýkingu. Eftir að hún kom meira upp í nágrannalöndunum var farið að skoða tilfelli nánar hér heima.

Höf.: Egill Aaron Ægisson