Karlmaður á sextugsaldri lést þann 23. júní á gjörgæsludeild Landspítalans af áverkum sínum eftir að hafa fallið á byggingarsvæði á Akranesi fyrr í mánuðinum.
Karlmaður á sextugsaldri lést þann 23. júní á gjörgæsludeild Landspítalans af áverkum sínum eftir að hafa fallið á byggingarsvæði á Akranesi fyrr í mánuðinum.
Þetta staðfestir Kristján Ingi Hjörvarsson, settur aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, í samtali við Morgunblaðið. Maðurinn féll á byggingarsvæðinu þann 12. júní en lést af áverkum sínum ellefu dögum síðar.
Lögreglan er með málið til rannsóknar en vildi ekki gefa upp frekari upplýsingar að svo stöddu.