Meirihlutinn í sveitarstjórn Þingeyjarsveitar er sprunginn. Á bæjarstjórnarfundi í gær var tilkynnt um að meirihlutasamstarfi E-listans væri lokið vegna „vegna alvarlegs trausts- og trúnaðarbrests á milli fulltrúa meirihlutans“.
Þetta kom fram í bókun þriggja bæjarfulltrúa E-listans.
Í Þingeyjarsveit eru 9 bæjarfulltrúar og tveir listar. E-listinn skipaði meirihlutann með 5 bæjarfulltrúa og minnihlutann skipuðu fjórir bæjarfulltrúar K-listans.
Nýr meirihluti hefur verið myndaður af K-listanum, Gerði Sigtryggsdóttur (E-listi) og Knúti Emil Jónassyni (E-listi).