Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru í búsetuúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar hefur fækkað um ríflega 340 á síðustu þremur mánuðum.
Þetta kemur fram í svari Vinnumálastofnunar við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Alls voru 1.893 umsækjendur um alþjóðlega vernd í búsetuúrræðum á vegum stofnunarinnar í fyrri hluta apríl en þeir eru nú 1.549 og hefur því fækkað um 342.
Þegar Morgunblaðið lagði fram fyrirspurn um málið í byrjun apríl voru um 1.050 umsækjendur í eigin húsnæði eða hjá vinum og vandamönnum. Af þeim voru hér um bil 100 í úrræðum á vegum ríkislögreglustjóra vegna fyrirhugaðrar brottfarar.
Fækkað um nærri helming
Nú búa hins vegar um 516 umsækjendur í eigin húsnæði eða hjá vinum og vandamönnum og hefur því fækkað um nærri helming síðan í byrjun apríl. Af þeim eru hér um bil 35 í úrræðum á vegum ríkislögreglustjóra vegna fyrirhugaðrar brottfarar, eða um þrefalt færri en í byrjun apríl.
Þær upplýsingar fengust hjá Vinnumálastofnun að helsta ástæðan fyrir fækkun umsækjenda um alþjóðlega vernd væri færri umsóknir frá Venesúela. Þá hefðu brottflutningar og sjálfviljug heimför umsækjenda einning áhrif á tölurnar.