„Ormsson getur ekki tekið áhættuna á því að vera með kveikt á skiltinu,” segir Vilhjálmur Þ.Á. Vilhjálmsson hrl.

„Ormsson getur ekki tekið áhættuna á því að vera með kveikt á skiltinu, því ef svo ólíklega færi að ekki yrði fallist á kröfur Ormsson þá yrði tjónið of mikið, enda 150.000 króna dagsektir á hvern dag sem kveikt er á skiltinu,” segir Vilhjálmur Þ.Á. Vilhjálmsson hrl.

For­svars­menn versl­un­ar­inn­ar Orms­son hafa stefnt Reykjavíkurborg vegna vinnubragða byggingafulltrúans í Reykjavík í tengslum við umdeilt auglýsingaskilti á húsi fyr­ir­tæk­is­ins við Lág­múla. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum. Deilt hefur verið um kröfu borgarinnar um byggingarleyfi fyrir umrætt skilti og hvort leyfið hafi verið veitt. >> 10