Landsmót Áhorfendur í brekkunni í 
gær voru af ýmsum toga.
Landsmót Áhorfendur í brekkunni í gær voru af ýmsum toga. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjórða Landsmót hestamanna sem haldið er á keppnissvæði Fáks í Reykjavík hófst í gær.

Herdís Tómasdóttir
Herdis@mbl.is

Fjórða Landsmót hestamanna sem haldið er á keppnissvæði Fáks í Reykjavík hófst í gær. Dagskráin stóð yfir frá morgni til kvölds á báðum keppnisvöllum en aðeins brot af þeim gæðingum sem búast má við á mótinu hafa komið fram.

Forkeppni í b-flokki gæðinga hófst á eftir barnaflokki og munaði litlu á efstu knöpunum. Jakob Svavar Sigurðsson og Kór frá Skálakoti eru efstir með 8,89 í einkunn. Jafnir með 8,86 í öðru sæti eru Hlynur Guðmundsson á Trommu frá Höfn og Helgi Þór Guðjónsson á Þresti frá Kolsholti 2.

Keppendur í þriðja sæti eru einnig jafnir með 8,81 í einkunn en það eru þau Arnhildur Helgadóttir á Völu frá Hjarðartúni og Sigurður Sigurðarson á Rauðu-List frá Þjóðólfshaga. Stefnir því í spennandi milliriðil í b-flokki á fimmtudaginn.

Matthías Sigurðsson stendur efstur eftir forkeppni í ungmennaflokki með 8,91 í einkunn. Einni kommu á eftir Matthíasi er Védís Huld Sigurðardóttir á Ísak frá Þjórsárbakka með 8,90. Þriðji er Jón Ársæll Bergmann og Heiður frá Eystra-Fróðholti með 8,80.

Keppt verður í b-flokki unglinga í dag og mega mótsgestir og áhorfendur búast við mikilli skemmtun þar.

Dagskrá á kynbótavelli hófst klukkan átta í gær með dómum kynbótahrossa. Yfir fimmtíu hryssur, fjögurra, fimm og sex vetra gamlar, mættu til dóms.

Efst í flokki fjögurra vetra hryssa er Hamingja frá Árbæ og hlaut hún 8,36 í aðaleinkunn. Nóta frá Sumarliðabæ 2 stendur efst í flokki fimm vetra hryssa með 8,57 í aðaleinkunn. Í flokki sex vetra hryssa stendur Edda frá Rauðalæk efst með 8,40 í aðaleinkunn.