Undanúrslitin í bikarkeppni karla í fótbolta hefjast í kvöld þegar KA fær Val í heimsókn til Akureyrar.

Undanúrslitin í bikarkeppni karla í fótbolta hefjast í kvöld þegar KA fær Val í heimsókn til Akureyrar. Viðureign liðanna hefst klukkan 18. Sigurliðið í kvöld leikur til úrslita um bikarinn gegn annað hvort Víkingi eða Stjörnunni en sú viðureign fer fram á Víkingsvellinum annað kvöld.