Breiðablik náði þriggja stiga forskoti á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta í gærkvöld með torsóttum sigri gegn Tindastóli á Sauðárkróki, 1:0.
Andrea Rut Bjarnadóttir skoraði þó sigurmarkið strax á 5. mínútu með góðu skoti frá vítateig en Skagfirðingar stóðu vel í toppliðinu það sem eftir lifði leiks.
Þetta var tíundi sigur Breiðabliks í ellefu leikjum og liðið er með 30 stig. Valskonur eru með 27 og fá Þrótt í heimsókn á Hlíðarenda í kvöld. Tindastóll seig niður í áttunda sætið með 10 stig.
Stjarnan fór hins vegar upp fyrir bæði Tindastól og Þrótt og í sjötta sætið með því að sigra Keflavík 1:0 í Garðabæ. Úlfa Dís Úlfarsdóttir skoraði sigurmarkið sem var kærkomið fyrir Stjörnukonur eftir fjóra tapleiki í röð. Markið skoraði hún með föstu skoti rétt utan vítateigs á 59. mínútu.
Stjörnukonur eru nú með 12 stig í sjötta sætinu en Keflavik situr eftir í fallsæti með 6 stig. Keflvíkingum gengur illa að skora eins og fyrri daginn, liðið hefur aðeins gert sjö mörk í 11 leikjum og ekki náð að skora í síðustu fjórum leikjum sem allir hafa tapast.
Fylkir fékk sitt fyrsta stig í sjö leikjum með markalausu jafntefli í nýliðaslag gegn Víkingi í Árbænum. Bæði lið fengu ágæt færi til að skora en markverðirnir áttu góðan leik, Birta Guðlaugsdóttir hjá Víkingi og Tinna Brá Magnúsdóttir hjá Fylki.
Fylkiskonur eru með 6 stig eins og Keflvíkingar og fara upp fyrir þá á markatölu.
Elleftu umferðinni lýkur í kvöld þegar Valur mætir Þrótti á Hlíðarenda og Þór/KA tekur á móti FH á Akureyri.