Hollendingurinn Cody Gakpo og Þjóðverjinn Jamal Musiala standa best að vígi í baráttunni um markakóngstitil Evrópumóts karla í fótbolta.

Hollendingurinn Cody Gakpo og Þjóðverjinn Jamal Musiala standa best að vígi í baráttunni um markakóngstitil Evrópumóts karla í fótbolta. Þeir eru komnir í átta liða úrslit með sínum liðum og hafa skorað þrjú mörk hvor, eins og þeir Georges Mikautadze frá Georgíu og Ivan Schranz frá Slóvakíu, sem eru báðir farnir heim. Gakpo hefur auk þess lagt upp eitt mark fyrir hollenska liðið.