Farið er fram á bætur sem nema hið minnsta nema 1,5 milljörðum króna. Þetta var ákveðið á fundi bæjarráðs fyrr í dag. Í kröfubréfi Vestmannaeyjabæjar og HS Veitna á hendur Vinnslustöðinni var farið fram á fullar bætur vegna tjónsins.
„Borist hefur svar frá lögmanni VÍS og Hugins ehf, auk Vinnslustöðvarinnar, sem felur í sér að bótaskylda er viðurkennd en bótakröfunni hafnað með vísan til heimildar í siglingalögum um að takmarka bætur við 360 milljónir króna, nema að um stórfellt gáleysi hafi verið að ræða. Þá gildir heimildin ekki,” segir í bókun Írisar Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja.