Af þeim eru tíu verslanir mikið skemmdar, eyðilögðust þar gólf, veggir og loft og verða þær að öllum líkindum ekki opnaðar fyrr en í haust, að sögn Baldvinu Snælaugsdóttur, markaðsstjóra Kringlunnar.
Tjónið hleypur á hundruðum milljóna króna.
Starfsemin er þó hægt og bítandi að færast í betra horf en búið er að opna níu verslanir á ný sem varð að loka tímabundið vegna skemmda á vörum.
„Staðan er merkilega góð miðað við hvernig ástandið var fyrst eftir brunann. Við erum að glíma við afleiðingarnar enda varð mikið vatnstjón á báðum hæðum fyrir neðan þetta svæði sem brann,” segir Baldvina.
„Það eru jákvæðir punktar á hverjum einasta degi og til að mynda í dag var opnuð Nespresso „Pop-up verslun” í göngugötunni,” segir Baldvina.
Kringlan var lokuð í fimm daga eftir brunann og var opnuð aftur 20. júní. Spurð hvernig aðsóknin hafi verið eftir opnunina segir hún:
„Við erum mjög sátt við aðsóknina þrátt fyrir þetta högg. Hún hefur verið um 90 prósent ef við berum saman tölur miðað við sama tíma og í fyrra, sem er mjög jákvætt. Fastagestirnir voru strax mættir á kaffihúsin og á veitingastaðina og nýi afþreyingarstaðurinn Oche er að draga marga mjög marga að og er vinsæll,” segir Baldvina.
Hún tekur fram að tryggingarfélögin séu enn að meta tjónið sem verslanirnar í Kringlunni urðu fyrir.
„Þetta er flókið ferli. Reitir eiga stóran hluta byggingarinnar og svo eru aðrir eigendur. Rekstraraðilarnir eru með sín eigin tryggingarfélög og það tekur langan tíma að vinna úr þessu. Við vitum að þetta tjón er talið í hundruðum milljóna króna en ekki tugum.”