Inga Sæland
Inga Sæland
Það er varla á færi nema hörðustu nagla að horfa yfir sviðið og sjá hvernig þessari ríkisstjórn hefur tekist að hella olíu yfir samfélagið og hreinlega bera eld að því. Núverandi staða þess einkennist af vaxandi fátækt, rýrnandi kaupmætti, biðlistum eftir læknishjálp og hreinlega óafsakanlegum húsnæðisskorti.

Undir verndarvæng mennta- og barnamálaráðherra hefur fátækt íslenskra barna vaxið um 44%. Lestrarfærni þeirra hefur hrakað gríðarlega og talið er að um helmingur drengja útskrifist úr grunnskóla með lélegan lesskilning eða jafnvel ólæsir.

Skerðingarofbeldið gagnvart öldruðum og öryrkjum heldur áfram. Hundrað einstaklingar deyja árlega ótímabærum dauða vegna fíkniefnasjúkdóma og yfir 700 manns bíða örvæntingarfullir eftir því að komast að á sjúkrahúsinu Vogi. Allt þetta í einu ríkasta landi í heimi. Í landi tækifæranna eins og Sjálfstæðisflokkurinn nefnir það.

Forgangsröðun fjármuna hjá þessari ríkisstjórn undanfarin sjö ár hefur sýnt að hinn almenni borgari, venjulegt fólk í landinu, getur étið það sem úti frýs. Einstæðar mæður örvænta á samfélagsmiðlum yfir því hvernig þær eigi að gefa börnum sínum hollan mat þegar þær hafa aðeins nokkur þúsund krónur á viku til ráðstöfunar. „Ég hef 20.000 kr. á mánuði, 5.000 kr. á viku til að gefa börnunum mínum að borða. Hvernig get ég komið í veg fyrir að börnin mín líði næringarskort?“ spyr ein þeirra. Ríkisstjórnin hefur skellt skollaeyrum við ákalli hjálparstofnana sem sjá um að brauðfæða þá allra verst settu. Það eru nefnilega ekki til peningar þegar kemur að því að aðstoða þá verst settu.

Á sama tíma dagar tugi aldraðra uppi á Landspítalanum í dýrasta hjúkrunarúrræði landsins. Þetta gerist þrátt fyrir vitneskju um vaxandi skort á hjúkrunarrýmum. Þingheimur hefur lengi vitað að eldra fólki muni fjölga hratt. En hverju hefur verið áorkað? Fjórflokkurinn hefur gefið ótal kosningaloforð um að standa vörð um velferð eldra fólks. Nú t.d. með því að auglýsa hvað það sé nú gott að eldast á Íslandi. Hlægilegt hvernig ríkisstjórnin hefur tileinkað sér flóttaleiðir strútsins með því stinga hausnum í sandinn í þeirri veiku von að vandinn leysist af sjálfum sér!

Staðreyndin er sú að rík­is­stjórn­inni er ná­kvæm­lega sama um þá sem hún var kjör­in til að vernda. Að baki eru sjö ár svika, vax­andi fá­tækt­ar og von­brigða. Við í Flokki fólksins munum leiðrétta óréttlætið með ykkar hjálp. Flokkur fólksins mun aldrei lofa til þess eins að svíkja þegar talið hefur verið upp úr kjörkössunum. Við munum alltaf setja fólkið í fyrsta sæti. Fólkið fyrst, svo allt hitt.

Höfundur er alþingismaður. ingasaeland@althingi.is

Höf.: Inga Sæland