Vífilsstaðir. Viðgerðum utan á lækn- isbústaðnum er lokið að mestu.
Vífilsstaðir. Viðgerðum utan á lækn- isbústaðnum er lokið að mestu.
Utanhússviðgerðum á yfirlæknisbústaðnum á Vífilsstöðum er nú lokið. Þær höfðu staðið yfir í þrjú ár en óljóst er með framhaldið. Eftir er að taka húsið í gegn að innan og framtíðarnotkun þess í óvissu.

Viðgerðir að utan voru á vegum Framkvæmdasýslu ríkisins. Húsið var tekið í gegn að utan, gert við þakið og skipt um glugga. Á öldinni sem leið bjuggu yfirlæknar Vífilsstaðaspítala í húsinu ásamt fjölskyldum sínum. Það var teiknað af Guðjóni Samúelssyni húsameistara ríkisins og tekið í notkun árið 1920.

„Fyrir nokkrum árum var húsið orðið yfirgefið og eiginlegur leikvöllur fyrir börn sem fóru þangað inn og fóru illa með húsið," segir Karl Pétur Jónsson, upplýsingafulltrúi Ríkiseigna/Framkvæmdasýslu ríkisins, í samtali við Morgunblaðið.

„Eftir múrviðgerðir að utan ætti húsið að standa af sér veður og vinda næstu áratugina," segir Karl Pétur en bætir við að meðan framtíðarnotkun Vífilsstaða sé óákveðin verði ekki farið í frekari framkvæmdir á húsinu að innan.

„Það eru alls konar hugmyndir í gangi, til dæmis um að gera þetta að safnaþorpi og ýmislegt fleira. En þetta er flókið samspil á milli ríkisins, Landspítalans og Garðabæjar," segir Karl Pétur enn fremur.

Björg Fenger, bæjarfulltrúi í Garðabæ, segir enga ákvörðun hafa verið tekna um framtíðarnotkun Vífilsstaða en málið sé á dagskrá bæjarstjórnar. Þegar sú ákvörðun hafi verið tekin geti Framkvæmdasýsla ríkisins tekið ákvörðun um nýtingu hússins.

gsa@mbl.is