Þjóðkirkjunni ber að greiða Kristni Jens Sigþórssyni, fyrrverandi sóknarpresti í Saurbæjarprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi, skaðabætur samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur.
Ágreiningurinn á rætur sínar að rekja til þess þegar kirkjuþing tók ákvörðun um að leggja Saurbæjarprestakall niður 3. mars árið 2019. Þangað til hafði Kristinn verið ótímabundinn sóknarprestur síðan árið 1996.
Kristni var boðið að taka við nýju embætti eftir að prestakallið var lagt niður. Þáði hann boðið nokkru síðar en þjóðkirkjan tilkynnti honum þá að boðið hefði fallið niður og tók hann ekki við nýju embætti.
Niðurstaða dómsins er sú að Kristinn hefði með réttu getað vænst þess að boðið um nýtt embætti stæði enn þá þegar hann ákvað að taka því. Með ákvörðun þjóðkirkjunnar um að boðið væri fallið niður braut kirkjan meginreglu stjórnsýsluréttarins um meðalhóf. Gekk þetta þvert gegn réttmætum væntingum Kristins.