Ökumaður bifhjóls slasaðist alvarlega í gær er hann féll af hjólinu og hafnaði utan vegar skammt frá Gígjukvísl á Skeiðarársandi.
Ökumaður bifhjóls slasaðist alvarlega í gær er hann féll af hjólinu og hafnaði utan vegar skammt frá Gígjukvísl á Skeiðarársandi.
Slysið varð um klukkan fjögur og var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út til að sækja ökumanninn.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi var einnig kölluð á slysstað til að rannsaka vettvang. Var annarri akreininni lokað og stýrði lögreglan umferð fram hjá á meðan.
Lögreglan kvaðst ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.