„Ég held að það sé ekki hægt að segja neitt annað en að það séu allar líkur á því að [Donald] Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna,” segir Þórarinn Hjartarson, þáttastjórnandi hlaðvarpsins Einnar pælingar, í nýjasta þætti Dagmála.
„Trump vinnur nokkuð örugglega,” segir hann spurður hvað hann telji að muni gerast í kosningunum.
Þann 5. nóvember ganga Bandaríkjamenn til kosninga og velja sér sinn næsta forseta. Joe Biden Bandaríkjaforseti átti slæmar kappræður á móti Trump, sem þó var staðinn að fjölda lyga, í síðustu viku og í kjölfarið heyrðust háværar raddir innan Demókrataflokksins um að Biden þyrfti að draga sig í hlé.
Heldurðu að það sé hægt að skipta honum út, jafnvel þótt þeir [Demókrataflokkurinn] telji sig þurfa að gera það?
„Það er hægt en hann þarf að vilja það sjálfur,” svarar Þórarinn.
Hann útskýrir að stjórn Demókrataflokksins hugleiði nú, samkvæmt fregnum í fjölmiðlum, að flýta forsetaútnefningu flokksins til að slá á umræður um að Biden verði ekki frambjóðandinn.
Áskrifendur Morgunblaðsins geta nálgast þáttinn í heild sinni inn á mbl.is.