Hálendisvaktin. Hjálparsveit skáta í Garðabæ hefur staðið vaktina síðustu daga. Verkefni björgunarsveita geta verið af margvíslegum toga.
Hálendisvaktin. Hjálparsveit skáta í Garðabæ hefur staðið vaktina síðustu daga. Verkefni björgunarsveita geta verið af margvíslegum toga. — Ljósmynd/Landsbjörg
Hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar hóf göngu sína á sunnudaginn.

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir fyrstu dagana hafa farið vel af stað. Fram til þessa hafi viðbragðsaðilarnir þurft að sinna einu stóru útkalli sem barst á þriðjudagskvöldið. Þá fótbrotnaði göngumaður er hann datt á Bláhnjúki skammt sunnan Landmannalauga. Búið var um göngumanninn á börum og hann fluttur úr mesta brattlendinu svo þyrla Landhelgisgæslunnar gæti sótt hann.

Algengt verkefni að draga fasta bíla

Vaktaskipti munu eiga sér stað á Landmannalaugum næsta sunnudag en þá mun Hjálparsveit skáta í Garðabæ taka við vaktinni og sinna henni út vikuna. Einnig munu þá bætast við hópar á Sprengisand, þar sem Landsbjörg er með bækistöð í Herðubreiðarlindum, og norðan við Vatnajökul, þar sem bækistöð er í Nýjadal.

“Það er á hverjum degi sem fólk leitar til hópsins,” segir Jón Þór í samtali við Morgunblaðið en tekur fram að verkefni Landsbjargar í vikunni hafi að öllu jöfnu verið fremur minniháttar.

Að sögn Jóns Þórs fela algeng verkefni viðbragðsaðila í sér að leiðsegja ferðamönnum og upplýsa um veður, gera að smásárum og skeinum og draga bíla sem ökumenn hafa fest, en algengt er að fólk lendi í þeim vandræðum í vaðinu við Laugar.

mariahjorvar@mbl.is