Keldan ehf. skilaði hagnaði upp á tæpa 61 milljón króna á síðasta ári samanborið við 43 milljónir árið áður. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins.
Rekstrartekjur námu 109 milljónum króna á árinu og hækkuðu um tæpar 26 milljónir milli ára, eða um 31%. Skuldir námu samtals tæplega 10,5 milljónum króna í árslok eg eigið fé 121 milljón.
Stjórn félagsins hyggst greiða 55 milljónir króna arð vegna síðasta rekstrarárs. Starfsemi Keldunnar snýr að vefsíðu með upplýsingum um fjármálamarkaði á Íslandi en félagið er í eigu hugbúnaðarfyrirtækisins Kóða. Thor Thors er framkvæmdastjóri.