Bretland. Keir Starmer leiðtogi Verkamannaflokksins.
Bretland. Keir Starmer leiðtogi Verkamannaflokksins. — AFP/Andy Buchanan
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Síðustu útgönguspár gáfu til kynna stórsigur Verkamannaflokksins í bresku þingkosningunum sem haldnar voru í gær. Íhaldsflokkurinn virtist á sama tíma hafa goldið algjört afhroð.

Síðustu útgönguspár gáfu til kynna stórsigur Verkamannaflokksins í bresku þingkosningunum sem haldnar voru í gær. Íhaldsflokkurinn virtist á sama tíma hafa goldið algjört afhroð.

Þegar Morgunblaðið fór í prentun var Verkamannaflokknum spáð 410 sætum. Ef spáin raungerist bætir flokkurinn við sig 209 þingsætum frá síðustu kosningum og fer með sterkan meirihluta á breska þinginu. Sigurinn yrði þó ekki stærri en árið 1997 þegar flokkurinn, undir forystu Tony Blair, vann sinn stærsta sigur. Keir Starmer, núverandi leiðtogi Verkamannaflokksins, mun að öllum líkindum taka við embætti forsætisráðherra á næstu dögum.

Gætu tapað 241 þingsæti

Íhaldsflokknum var spáð 131 sæti. Ef sú spá raungerist tapar flokkurinn 241 þingsæti. Fyrir kosningarnar höfðu kannanir bent til þess að flokkurinn myndi aðeins ná um 100 þingsætum en útgönguspáin bendir til þess að flokkurinn endi með aðeins fleiri sæti. Þetta yrði þó verri niðurstaða fyrir Íhaldsflokkinn heldur en árið 1997 þegar flokkurinn fékk sögulega fá þingsæti, eða 165. Frjálslyndir demókratar fá samkvæmt útgönguspánni 61 þingsæti. Myndi flokkurinn bæta við sig 53 þingsætum ef það verður niðurstaða kosninganna. Þá er Umbótaflokki Nigels Farage spáð 13 þingsætum.

Skoski þjóðarflokkurinn fær aðeins 10 þingsæti samkvæmt útgönguspánni, en samkvæmt henni tapar flokkurinn 38 þingsætum. Velska þjóðarflokknum Plaid Cymru er spáð 4 þingsætum og græningjum 2 þingsætum.

Útgönguspáin sem hér er vitnað í var unnin af könnunarfyrirtækinu Ipsos, sem er í samvinnu við BBC, ITV News og Sky News.

Útgönguspár eru nokkuð nákvæmar og eiga að gefa mjög góða mynd af því hver lokaniðurstaðan verður.

650 fulltrúar eru kjörnir á þing í jafn mörgum kjördæmum. Flokkar þurfa því að minnsta kosti 326 þingsæti til að mynda meirihlutastjórn.

Undir lok maí boðaði Rishi Sunak forsætisráðherra óvænt til þingkosninganna. Snörp kosningabarátta tók þá við og er nú útlit fyrir sögulega slæmt gengi Íhaldsflokksins. Þetta voru fyrstu þingkosningarnar í Bretlandi síðan Boris Johnson vann afgerandi sigur fyrir Íhaldsflokkinn árið 2019.

Hermann Nökkvi Gunnarsson
hng@mbl.is

Höf.: Hermann Nökkvi Gunnarsson