Norður
♠ 2
♥ KDG52
♦ Á972
♣ 753
Vestur
♠ KDG63
♥ –
♦ 54
♣ ÁDG986
Austur
♠ 10765
♥ 1043
♦ D105
♣ K42
Suður
♠ Á98
♥ Á9876
♦ KG83
♣ 10
Suður spilar 3G.
Daninn Dennis Bilde lét nefið ráða för í þessu spili. Það reyndist ekki vel. Bilde var í suður og opnaði á 1♥. Vestur sýndi spaða og láglit með 2♥ (Michaels) og Martin Schaltz í norður tók sterkt undir hjartað með splinterstökki í 3♠. Austur sagði 4♠, Bilde 4G, vestur 5♠ og Schaltz 6♥. Allir pass, laufás út og laufdrottning í öðrum slag.
Allt snýst um tígulinn, augljóslega, sem liggur eins og best verður á kosið. En það vissi Bilde ekki. Eftir að hafa tekið trompin og stungið lauf í rannsóknarskyni lagðist Bilde undir feld í þrjár mínútur. „Ég hef aldrei séð Dennis hugsa svona lengi,“ skrifaði samlandi hans Peter Lund (Pelu) á BBO og leist greinilega ekki á blikuna. Enda fór það svo að þegar Bilde loks svipti af sér feldinum þá spilaði hann hjarta heim og lét tígulgosann sigla yfir á drottningu austurs. Einn niður.