Norður
♠ ÁKD2
♥ 95
♦ ÁKD1094
♣ 5
Vestur
♠ 76
♥ 104
♦ G52
♣ ÁD10643
Austur
♠ 10954
♥ ÁKD63
♦ 85
♣ K8
Suður
♠ G83
♥ G872
♦ 73
♣ G972
Suður spilar 3G.
„Alltaf níu slagir í grandi.“ Magnús mörgæs er háttvís maður og dagfarsprúður, en hann hefur einn veikleika – aulabrandara. Þrjú grönd voru sögð út um víðan völl í þessu spili Evrópumótsins og yfirleitt byrjaði vörnin á því að taka níu fyrstu slagina, þrjá á hjarta og sex á lauf.
Færeyingarnir Danjal Pauli Mohr og Arni Dam voru í þriggja granda hópnum. Dam opnaði á 2♦, sem er afbrigði af multi og sýnir annaðhvort veika tvo í hálit eða sterk spil með tígul. Mohr sagði 2♥ leitandi á móti og Dam stökk í 3♠ til að sýna sterk spil í tígli með fjórlit í spaða til hliðar. Athyglisverð sagnvenja, en dýrkeypt í þetta sinn. Hinum megin opnaði Birkir Jón Jónsson á 1♦ í norður og austur kom inn á 1♥. Eftir pass í suður og vestur doblaði Birkir og sagði svo rólega 2♦ við grandsvari Aðalsteins Jörgensens. Allir pass og tíu slagir.