Trymbillinn Jay Weinberg ásamt spúsu sinni, Chloe Howcroft.
Trymbillinn Jay Weinberg ásamt spúsu sinni, Chloe Howcroft. — AFP/Frazer Harrison
Samstarf Suicidal Tendencies hefur sent frá sér nýtt lag, Nós Somos Família, sem er tilbrigði við 34 ára gamalt lag gömlu þrassgoðanna, We are…

Samstarf Suicidal Tendencies hefur sent frá sér nýtt lag, Nós Somos Família, sem er tilbrigði við 34 ára gamalt lag gömlu þrassgoðanna, We are Family. Sungið á portúgölsku og óvígur her brasilískra listamanna kemur við sögu, Badauí, Rodrigo Lima og fleiri góðir. Þá er þetta frumraun nýja trymbilsins, Jays Weinbergs, með Suicidal en hann var sem kunnugt er áður í Slipknot. Mike Muir söngvari stendur enn keikur í stafni en af öðrum bandingjum í dag má nefna bassaleikarann Tye Trujillo, son Roberts bassaleikara Metallica, sem sjálfur var í Suicidal forðum daga. Muir kveðst í samtali við brasilíska miðla vera hæstánægður með útkomuna.