Forest Whitaker leikur dómara.
Forest Whitaker leikur dómara. — AFP/Rodin Eckenroth
Ráðgáta Enda þótt persóna hans deyi strax í fyrsta þætti þá fer Forest Whitaker samt með aðalhlutverkið í nýjum bandarískum lagadramamyndaflokki, Emperor of Ocean Park. Þökk sé tækninni sem gerir okkur kleift að flakka fram og aftur í tíma

Ráðgáta Enda þótt persóna hans deyi strax í fyrsta þætti þá fer Forest Whitaker samt með aðalhlutverkið í nýjum bandarískum lagadramamyndaflokki, Emperor of Ocean Park. Þökk sé tækninni sem gerir okkur kleift að flakka fram og aftur í tíma. Byggt er á samnefndri skáldsögu Stephens L. Carters frá 2002 og Whitaker leikur hæstaréttardómarann Oliver Garland sem fellur frá með sviplegum hætti. En fékk hann hjartaáfall eða var honum ráðinn bani? Börnin hans þrjú fara að grennslast fyrir um málið og sitthvað óvænt kemur í ljós, eins og gengur. Þættirnir koma inn á MGM+ í Bandaríkjunum í dag og þeim hlýtur fyrr en síðar að skola á land hér.