Grenivik Stefnt er að opnun hótelsins á vormánuðum þrátt fyrir tafir í framkvæmdum. Frá herbergjum hótelsins er fallegt útsýni yfir Eyjafjörðinn og algengt er að sjá hvali synda um fjörðinn. Mikil eftirvænting fylgir opnuninni.
Grenivik Stefnt er að opnun hótelsins á vormánuðum þrátt fyrir tafir í framkvæmdum. Frá herbergjum hótelsins er fallegt útsýni yfir Eyjafjörðinn og algengt er að sjá hvali synda um fjörðinn. Mikil eftirvænting fylgir opnuninni. — Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Tafir hafa orðið á framkvæmdum á lúxushótelinu Höfða Lodge við Grenivík í Eyjafirði. Björgvin Björgvinsson, einn eigenda hótelsins, segir í samtali við Morgunblaðið að enn sé stefnt að því að opna hótelið til prufu næsta vor og rúmlega tveimur mánuðum síðar eigi að opna hótelið fyrir gestum

Birta Hannesdóttir

birta@mbl.is

Tafir hafa orðið á framkvæmdum á lúxushótelinu Höfða Lodge við Grenivík í Eyjafirði. Björgvin Björgvinsson, einn eigenda hótelsins, segir í samtali við Morgunblaðið að enn sé stefnt að því að opna hótelið til prufu næsta vor og rúmlega tveimur mánuðum síðar eigi að opna hótelið fyrir gestum.

Björgvin rekur einnig þyrluskíðafyrirtækið Viking Heliskiing og skíðaferðafyrirtækið Scandic Guides ásamt Jóhanni Hauki Hafstein og mun hótelið þjóna sem höfuðstöðvar þyrluskíðastarfseminnar.

Búið er að opna fyrir bókanir hjá skíðagestum þeirra Björgvins og Jóhanns en stefnt er að því aðalmenningur geti byrjað að bóka gistingu á hótelinu í vetur.

Fokhelt í ágúst

Hótelið verður 6.000 fermetrar að flatarmáli, með 42 herbergi og 28 starfsmannaherbergi. Að sögn Björgvins er búið að koma öllum herbergjum hótelsins fyrir og stefnt er að því að húsið verði orðið fokhelt í ágúst. Upphaflega stóð til að það yrði fokhelt í maí.

Ýmsar ástæður eru fyrir töfunum á framkvæmdinni en Björgvin segir flókið að byggja hótel á svæðinu, einkum vegna þess að það stendur á 50 metra háum kletti, 800 metrum frá Grenivík.

Þá þurfti að leigja fjögur stór fraktskip til að flytja inn húseiningar fyrir hótelið inn til landsins. „Verkefnið er mjög flókið en af því það er flókið er það mjög einstakt,“ segir Björgvin.

Útsýni yfir Eyjafjörðinn

Eins og fyrr segir er hótelið staðsett á 50 metra háum kletti skammt frá Grenivík og er útsýni yfir Eyjafjörðinn frá herbergjum hótelsins.

„Það verða allir orðlausir þegar þeir koma upp á klettinn. Það bregst varla að þú sjáir hval frá húsinu og það er náttúrulega ótrúlega einstakt,” segir Björgvin.