Bíldudalur Grunnskólinn er ónothæfur vegna myglu.
Bíldudalur Grunnskólinn er ónothæfur vegna myglu. — Skjáskot/RÚV
Bíldudalsskóli hefur verið lokaður vegna myglu undanfarna tvo vetur eftir að húsnæðið var dæmt ónothæft. Til að byrja með var gamli barnaskólinn notaður til kennslu en síðasta vetur fengu börnin inni á Skrímslasetrinu á Bíldudal

Viktoría Benný B. Kjartansdóttir

viktoria@mbl.is

Bíldudalsskóli hefur verið lokaður vegna myglu undanfarna tvo vetur eftir að húsnæðið var dæmt ónothæft. Til að byrja með var gamli barnaskólinn notaður til kennslu en síðasta vetur fengu börnin inni á Skrímslasetrinu á Bíldudal. Til stendur að byggja nýjan grunnskóla sem taka á í gagnið haustið 2025.

Skrímslasetrið er safn tileinkað íslenskum þjóðsögum og sögum um sjávarskrímsli sem eru sögð hafa sést á Vestfjörðum og víðar um Ísland. Safnið hefur verið vinsæll áningarstaður ferðamanna, einkum yfir sumarið.

Kennslustofa á kaffihúsinu

Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar segir í samtali við Morgunblaðið að þrátt fyrir slæmar aðstæður hafi verið fundin leið til að láta þetta ganga. Nemendur og foreldrar hafi tekið vel í þessa tímabundna lausn.

„Þetta hefur gengið ótrúlega vel þrátt fyrir að húsnæðið er þröngt og aðstæður því ekki góðar. Þetta er tímabundið ástand og kennarar og börnin hafa tekið ákvörðun um að láta þetta ganga.“

Gerður segir safnið sjálft alveg lokað af þannig að börnin komist ekki þangað inn. Kennslustofan er síðan í kaffihúsi safnsins. Gerður segir skólahald vonandi hefjast aftur með eðlilegu formi haustið 2025 og að framkvæmdir við nýjan skóla muni hefjast á næstunni.

„Við erum að horfa á eitt skólaár í viðbót við þessar aðstæður,” segir Gerður.

Höf.: Viktoría Benný B. Kjartansdóttir