Glæður Whitesnake hefur hvergi nærri lagt upp laupana, að sögn Tönyu O’Callaghan bassaleikara. Málmbandið goðsagnakennda þurfti að fresta kveðjutúr sínum fyrir tveimur árum vegna veikinda söngvarans Davids Coverdales
Glæður Whitesnake hefur hvergi nærri lagt upp laupana, að sögn Tönyu O’Callaghan bassaleikara. Málmbandið goðsagnakennda þurfti að fresta kveðjutúr sínum fyrir tveimur árum vegna veikinda söngvarans Davids Coverdales. Í samtali við finnska málmgagnið Caoszine segir O’Callaghan gamla manninn allan vera að braggast og hann sé farinn að tala um að semja nýtt efni. Og jafnvel túra á ný.