Bakslag Vegamálastjóri segir fjölda banaslysa í ár sorglegt bakslag.
Bakslag Vegamálastjóri segir fjölda banaslysa í ár sorglegt bakslag. — Morgunblaðið/Eggert
Öll þau banaslys sem orðið hafa í umferðinni á árinu verða skoðuð í þaula. Forstjóri Vegagerðarinnar segir fjöldann gefa til kynna að bakslag hafi orðið. Ellefu hafa látist í átta umferðarslysum það sem af er ári og er þó árið aðeins rétt rúmlega hálfnað

Egill Aaron Ægisson

egillaaron@mbl.is

Öll þau banaslys sem orðið hafa í umferðinni á árinu verða skoðuð í þaula. Forstjóri Vegagerðarinnar segir fjöldann gefa til kynna að bakslag hafi orðið. Ellefu hafa látist í átta umferðarslysum það sem af er ári og er þó árið aðeins rétt rúmlega hálfnað.

„Okkur finnst það hræðilegt,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar.

„Þetta er virkilega sorglegt af því að það hafði náðst árangur í millitíðinni. Við vorum dálítið á réttri leið og svo kemur þetta svakalega bakslag,“ segir Bergþóra og vísar þar til síðustu ára þar sem heildarfjöldi banaslysa hafði aldrei farið yfir tíu á ári. Leita þarf aftur til ársins 2018 til að finna jafn mörg dauðsföll í umferðinni.

Segir Bergþóra að hvert og eitt málanna verði skoðað eftir þeim upplýsingum sem Vegagerðin hefur en nefnir hún jafnframt að yfirleitt sé það rannsóknarnefnd samgönguslysa sem þurfi fyrst að skoða málin.

Að sögn Bergþóru er alveg ljóst að þetta verði meginviðfangsefni umferðar- og öryggisráðs sem stýrt er af innviðaráðuneytinu. Þar munu koma saman Vegagerðin, Samgöngustofa, ríkislögreglustjóri og ráðuneytið.

„Það er vettvangurinn til að taka alla þætti því að það er ekki hægt að horfa á þetta alveg einangrað. Það eru allskonar aðrir þættir sem hafa áhrif líka,“ nefnir forstjórinn og bætir við: „Ég held að þetta sé sameiginleg upplifun okkar allra að við erum mjög slegin yfir þessu.“

Aðspurð segist hún gera ráð fyrir að boðað verði til einhverra funda strax eftir verslunarmannahelgi.

„Við skoðum aðstæður á hverjum stað og okkar svæðisstjórar gera skýrslur og við skoðum það og reynum að rýna í það í hvert skipti,“ segir Bergþóra en leggur áherslu á að til þess að geta skoðað á banaslysin frá víðara sjónarhorni verði að gera það á vettvangi umferðar- og öryggisnefndar.

Höf.: Egill Aaron Ægisson