KR og FH hafa gert með sér samkomulag um að knattspyrnumennirnir Ástbjörn Þórðarson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson gangi í raðir uppeldisfélagsins KR og að Kristján Flóki Finnbogason fari í hina áttina, til uppeldisfélags síns FH
KR og FH hafa gert með sér samkomulag um að knattspyrnumennirnir Ástbjörn Þórðarson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson gangi í raðir uppeldisfélagsins KR og að Kristján Flóki Finnbogason fari í hina áttina, til uppeldisfélags síns FH.
Ástbjörn og Gyrðir Hrafn eru 25 ára gamlir og skrifuðu báðir undir fimm ára samninga við Vesturbæjarfélagið. Kristján Flóki er 29 ára og skrifaði undir þriggja ára samning við Hafnarfjarðarfélagið.