Grétar Snær Hjartarson fæddist 7. ágúst 1937. Hann lést 11. júní 2024.

Hann var sonur hjónanna Aðalheiðar Rögnu Sveinsdóttur kennara og organista og Hjartar Hjálmarssonar skólastjóra. Foreldrar Rögnu voru Sigríður Oddný Benediktsdóttir og Sveinn Gunnlaugsson. Foreldrar Hjartar voru Guðleif Kristín Þorsteinsdóttir og Hjálmar Stefán Þorláksson.

Grétar kvæntist 28.1. 1961 eftirlifandi eiginkonu sinni Sigrúnu Sigurðardóttur, f. 7.1. 1940. Hún er dóttir Dórótheu Jóhannesdóttur húsmóður og Sigurðar Magnúsar Jónssonar sjómanns og verkamanns. Börn Grétars og Sigrúnar eru: 1) Sigurður Magnús, f. 11.10. 1960, giftur Evu Nittaya Sudsawat Grétarsdóttur, börn Sigurðar eru a) Helga Rún, f. 1997, sambýlismaður hennar er Karel Atli Ólafsson, synir þeirra eru I) Adriel Máni, f. 2017, og II) Atlas Örn, f. 2020. b) Grétar Songkran, f. 2003, c) Sigrún Jitlada, f. 2004, d) Elín Petlada, f. 2009. 2) Hjörtur Sveinn, f. 26.11. 1961, fráskilinn, börn hans eru a) Ólafía Mjöll Hönnudóttir, f. 1982. Börn hennar eru I) Aníta Líf Nilsen Ómarsdóttir, f. 2001, sambýlismaður hennar er Bjartur Evald Magnússon, barn þeirra er Máni Snær Evald, f. 2021, II) Benedikt Snær Hauksson, f. 2006, b) Sigrún Ragna Guðlaugardóttir, f. 1986, c) Grétar Snær, f. 1989. d) Kristrún Ósk, f. 1994. 3) Dóróthea Heiður, f. 29.9. 1968, gift Ingólfi Erni Steingrímssyni, börn þeirra eru a) Steingrímur Örn, f. 1992, sonur hans Ingólfur Örn, f. 2021, b) Sigrún Arna, f. 1999, c) Theódór Örn, f. 2002.

Grétar fæddist á heimili foreldra sinna á Flateyri við Önundarfjörð. Hann útskrifaðist frá Samvinnuskólanum að Bifröst í Borgarfirði 1959. Grétar starfaði ungur við verkamannavinnu á Flateyri og í vegagerð, síðan hjá Kaupfélagi Önfirðinga 1959-1960, hann leysti af sem kaupfélagsstjóri í Grindavík, fulltrúi hjá Innkaupastofnun ríkisins, skrifstofustjóri Klæðaverslunar Andrésar og rekstrarstjóri Flugfélagsins Vængja, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Ísfirðinga 1971-1974, starfsmannastjóri Skýrr 1975-2004, sem skólaliði við Lágafellsskóla, hjá Landssamtökum eldri borgara sem framkvæmdastjóri og formaður Famos.

Grétar var ötull í félagsstörfum, sat m.a. í stjórn ungmennafélagsins Grettis á Flateyri og var formaður, vann að málefnum badmintoníþróttarinnar, uppbyggingu Íþróttahúss TBR og var meðal stofnenda og síðar formaður félags badmintondómara, var meðal stofnenda badmintondeildar UMFA í Mosfellsbæ og sat í stjórn hennar, starfaði með golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ að uppbyggingu á golfvelli, aðstöðu klúbbsins, mótahald og sat í stjórn, meðal stofnenda Mosfellskórsins og sat í stjórn hans, sat í stjórn karlakórsins Stefnis í Mosfellsbæ, starfaði með Litla Leikklúbbnum á Ísafirði og með Leikfélagi Mosfellssveitar.

Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.

Í dag, 7. ágúst, verður pabbi jarðsettur, en við hefðum fagnað 87 ára afmæli hans í dag hefði hann lifað.

Hann lést 11. júní síðastliðinn og var jarðsunginn í kyrrþey, að eigin ósk, þann 21. júní.

Að vissu leyti hafði pabbi undirbúið okkur undir þennan dag, því eftir að hann greindist hjartveikur árið 2007 þá sagði hann við okkur að ef hann færi þá væri það alveg í lagi. Hann hefði átt mjög gott líf, alist upp á yndislegum stað hjá góðum foreldrum, átt góða konu, góða fjölskyldu og haft gott fólk í kringum sig. Hann var alveg sáttur. Þetta hef ég haft í huga undanfarnar vikur ásamt þakklæti fyrir því að við fengum að hafa hann hjá okkur í 17 ár í viðbót.

Það er auðvitað margs að minnast eftir öll þessi ár, en efst í huga er minning um góðan pabba sem sýndi okkur börnum sínum og okkar afkomendum mikla væntumþykju og var mjög stoltur af öllum hópnum sínum. Hann vildi allt fyrir okkur gera og dekraði og dúllaði við okkur, til dæmis átti hann það til að svæfa mig þegar ég var lítið barn með því að taka fram greiðuna sína og greiða mér í svefn.

Pabbi er af þeirri kynslóð sem var ekki mikið að bera tilfinningar sínar á torg, en aldrei efuðumst við samt um ást hans og væntumþykju. Afkomendur okkar fengu líka að njóta barngæsku pabba. Þau mamma voru ávallt tilbúin að passa fyrir okkur þegar eftir því var leitað og börnin eiga ótal minningar um samveru við ömmu sína og afa þar sem þau fóru saman í göngutúra, teiknuðu og máluðu, spiluðu á orgelið hans afa, fóru með þeim á leikvelli og í ferðalög. Slíkar minningar eru dýrmætar að eiga og ylja sér við.

Í brúðkaupsveislu okkar Ingólfs hélt pabbi ræðu eins og hefð er fyrir. Gestir okkar höfðu margir á orði að þetta hefði verið besta „pabbaræða“ sem þeir hefðu heyrt og hún skildi eftir tár á hvarmi hjá jafnvel hörðustu karlmönnunum í salnum. Þarna bauð hann Ingólf og Steingrím velkomna í fjölskylduna og afhenti nýbökuðum tengdasyninum lykil að húsi þeirra mömmu og sagði þá feðga ávallt velkomna á þeirra heimili. Reyndar seldu þau húsið nokkrum vikum síðar, sem vakti auðvitað kátinu í þessu samhengi, en lyklinum var fljótlega skipt út fyrir lykil að nýja húsinu.

Eftir að pabbi fór á eftirlaun starfaði hann á tímabili sem skólaliði hjá Lágafellsskóla og naut sín vel. Til dæmis keypti hann nokkur pör af vettlingum sem hann gat þá lánað börnum sem höfðu gleymt sínum og var kalt á fingrunum. Við gangbrautarvörslu á rigningardögum tók hann stóru golfregnhlífina með sér til að börnin gætu leitað skjóls undir henni.

Pabbi hafði mjög mikla ánægju af félagsstörfum, íþróttum og tónlist og sérstaklega skipaði golfíþróttin stóran sess í hans lífi. Hann spilaði á nokkur hljóðfæri og söng í nokkrum kórum yfir ævina. Enda sé ég hann fyrir mér í sumarlandinu búinn að kalla saman á æfingu hjá þeim félögum úr skólahljómsveit Bifrastarskóla sem fallnir eru frá og það er kátt á hjalla.

Takk elsku pabbi minn fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína öll þessi ár, minningin um þig mun ylja okkur um ókomin ár.

Meira á www.mbl.is/andlat/

Þín dóttir,

Dóróthea

Í dag hefði pabbi orðið 87 ára en hann lést 11. júní síðastliðinn. Líkamlegu heilsunni hrakaði síðustu misserin en hugurinn var skýr og skarpur alveg fram í andlátið.

Jæja gamli, þá er komið að leiðarlokum hjá okkur í bili.

Af mörgu er að taka en mér er efst í huga þakklæti fyrir að hafa alist upp við ástríki og gott atlæti alla tíð. Að fá kannski ekki allt sem mann langaði í en allt sem maður þurfti. Það er ekki sjálfgefið að eiga athvarf hjá og eiga vísan stuðning góðra foreldra. Ég tel það mikil forréttindi að hafa fæðst inn í þessa fjölskyldu öðlinga langt aftur í ættir. Þakklátur þér fyrir hvað þú nenntir endalaust að snúast í kringum okkur. Hvort sem var að fara með okkur á skíði eða að sækja prinsinn á Laugarvatn í helgarfrí frá skólanum af því að hann nennti ekki með rútunni þegar Óli Ket keyrði. Hjálpina við að mála hverja íbúðina á fætur annarri, aðstoða mömmu við að passa barnabörnin svo eitthvað sé nefnt, að ég tali nú ekki um alla ástúðina, traustið og velvildina. Þakklátur ykkur mömmu fyrir að ég hafi aldrei á ævinni, ekki í eina mínútu, efast um að vera elskaður skilyrðislaust, þótt stundum hafi hvesst, sérstaklega þegar sonurinn var að æfa sig í að vera vandræðaunglingur. Þakklátur fyrir hvað þú varst góður og stoltur afi, barnabörnin og barnabarnabörnin eiga góðar minningar í tonnavís af ykkur mömmu.

Þú vannst sannarlega í lífsins lottóinu þegar þú kynntist henni mömmu sem var þín stoð alla tíð. Árin ykkar 67 saman bera vott um það.

Það hefur ekki alltaf verið auðvelt fyrir ykkur að eiga skæruliðana tvo, þótt þið hafið oft getað hlegið að uppátækjum bræðranna. En þið voruð sannarlega verðlaunuð fyrir þolinmæðina þegar örverpið og engillinn hún systir okkar fæddist, svo meðaltalið varð ágætt að lokum.

Svo var nú dálítið skondið hvað þú áttir erfitt með að taka hrósi og þakklæti. Ég minnist þess þegar hún Sigrún mín Ragna var tveggja ára og við vorum að flytja inn í nýja íbúð en höfðum ekki efni á gólfefnum í bili. Þá komst þú og sagðir að mamma gæti ekki hugsað sér að nafna hennar væri að ganga á köldu, máluðu gólfinu. Sagðir að hún vildi láta okkur hafa peninga fyrir filtteppi að hafa þar til við hefðum efni á varanlegu gólfefni. Svo hittumst við eins og sprúttsalar á bílastæði við verslun þar sem ég fékk ávísun, pening og happdrættismiða með vinningi á. Mamma skildi svo ekkert hvað ég var að tala um þegar ég þakkaði henni fyrir teppið.

Og svo er það íslenskan. Við bræður vinnum engin verðlaun á þeim vígstöðvum en ekki veit ég hvernig hún væri hjá okkur ef ekki væri fyrir þusið um þágufallssýkina og allt hitt.

En svo kom amma okkur til bjargar þegar hún sagði okkur söguna af þér þriggja ára að lýsa því sem fram fór á sjómannadaginn, „fyrst var skjótt og svo var árað og árað til að vita hver yrði undastur“. Þetta var svarið sem þú fékkst við leiðréttingum eftir það.

Ég veit að þú hafðir lúmskt gaman af þeirri stríðni.

Sjáumst seinna gamli minn.

Meira á www.mbl.is/andlat/

Þinn elskandi sonur,

Hjörtur.